Ólafur Þór Kristjánsson

Ólafur stofnaði Tónsali árið 2005 og hefur rekið skólann síðan. Hann hóf ungur nám á blokkflautu í Tónlistarskóla Garðabæjar, færði sig svo síðar yfir á klassískan gítar í sama skóla. Lærði á rafbassa í tónlistarskóla FÍH á unglingsárum. Ólafur stundaði einnig nám í viðskiptafræði í Háskóla Íslands áður en hann stofnaði Tónsali. Ólafur hefur samhliða námi og störfum starfað sem tónlistarmaður og spilað og hljóðritað með mörgum af helstu tónlistarmönnum landsins í gegnum árin.

oli@tonsalir.is
534 3700
663 7721