Upphaf skólaárs 26-27

Þessa dagana erum við í óða önn að koma haustönninni af stað. Búið er að hafa samband við skráða nemendur og þeim boðið að koma til okkar næstkomandi miðvikudag, 26. ágúst, milli kl. 16:00 og 18:30, til að hitta kennara og finna hentugan kennslutíma fyrir veturinn.

Fyrsti kennsludagur er síðan mánudaginn 31. ágúst.

Enn eigum við örfá laus pláss fyrir haustönnina og hvetjum við áhugasama til að senda inn umsókn sem fyrst. Sótt er um með því að smella á hlekkinn hér að ofan, merktan „Innritun“.